Fréttir

Sjóðstjóraskipti 26.febrúar 2017

 

Veðskuldabréfasjóður ÍV er fagfjárfestasjóður í rekstri ÍV sjóða hf. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1, sem skráður er á skipulegan verðbréfamarkað Nasdaq á Íslandi.

Þriggja ára fjárfestingartímabili Veðskuldabréfasjóðs ÍV lýkur þann 26. febrúar 2017 skv. reglum sjóðsins og ákvörðun fjárfestingarráðs. Eftir lok fjárfestingartímabilsins verða ekki teknar ákvarðanir um nýjar fjárfestingar. Starfsemi sjóðsins einskorðast þá við úrvinnslu eigna, efndir fjárfestingaloforða, eftirlit, samskipti við útgefendur skuldabréfa í eigu sjóðsins og opinbera upplýsingagjöf í samræmi við reglur um viðvarandi upplýsingaskyldu skráðra fjármálagerninga, s.s. vegna skuldabréfaflokksins VIV 14 1, sem sjóðurinn er útgefandi að.

Við lok fjárfestingartímabils munu Andrés Ívarsson og Helga Björg Ingvadóttir, starfsmenn ÍV sjóða taka við stjórn sjóðsins af Hreini Þór Haukssyni.


 

Andrés Ívarsson er annar af tveimur nýjum sjóðstjórum Veðskuldabréfasjóðs ÍV, fæddur árið 1976 og hefur verið sjóðstjóri skuldabréfasjóða hjá ÍV sjóðum frá 2014.  Hann hefur yfir 12 ára reynslu á fjármálamarkaði í fjárstýringu, fjármögnun og sjóðastýringu hjá Íslandsbanka, Byr og ÍV sjóðum.  Andrés hefur lokið M.sc. gráðu í viðskiptafræði með áherslu á fjármál frá Háskólanum á Bifröst og B.Sc. prófi í viðskiptafræði frá sama skóla.  Andrés hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum. 

Helga Björg Ingvadóttir er annar af tveimur nýjum sjóðstjórum Veðskuldabréfasjóðs ÍV, fædd árið 1982 og hefur verið sjóðstjóri skammtíma, hlutabréfa og blandaðra sjóða hjá ÍV sjóðum frá árinu 2010. Á yfir 10 ára starfsferli á fjármálamarkaði starfaði Helga við regluvörslu og sjóðstjórn hjá Byr og ÍV sjóðum. Hún hóf störf hjá ÍV sjóðum árið 2010. Helga er með B.Sc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík frá 2006 og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.


 

Heimasíða sjóðsins, www.viv.is hefur að geyma upplýsingar um starfsemi sjóðsins, uppgjör og einblöðunga auk fréttatilkynninga og skráningargagna vegna skuldabréfaflokksins VIV 14 1.

Frekari upplýsingar veita ÍV sjóðir í síma 460-4700


Svæði

ÍV sjóðir hf. | Hvannavellir 14 - 600 Akureyri  | Sími 460 4700 | ivsjodir@ivsjodir.is | Kt. 491001-2080 | Lagalegur fyrirvari