Fréttir

Fjárfestingartímabil VÍV framlengt um 12 mánuði

Fjárfestingaráð Veðskuldabréfasjóðs ÍV hefur samþykkt að nýta heimild í reglum sjóðsins um framlengingu fjárfestingartímabils um 12 mánuði. Fjárfestingartímabil sjóðsins verður þá samtals 3 ár og lýkur 26. febrúar 2017.

Veðskuldabréfasjóður ÍV er fagfjárfestasjóður í rekstri ÍV sjóða hf. sem fjárfestir í skuldabréfum útgefnum af lögaðilum, tryggðum með veði í tekjuberandi fasteignum. Sjóðurinn er útgefandi skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á Nasdaq OMX

Tilkynning þessa efnis hefur verið birt í fréttaveitu Nasdaq OMX:
https://cns.omxgroup.com/cdsPublic/viewDisclosure.action?disclosureId=698552&messageId=873601


Svæði

ÍV sjóðir hf. | Hvannavellir 14 - 600 Akureyri  | Sími 460 4700 | ivsjodir@ivsjodir.is | Kt. 491001-2080 | Lagalegur fyrirvari