Fréttir

Veðskuldabréfasjóður ÍV - FME staðfestir lýsingu

Skuldabréfaflokkurinn VÍV 14 1 - Veðskuldabréfasjóður ÍV - Birting lýsingar

Útgefandi: Veðskuldabréfasjóður ÍV - fagfjárfestasjóður., kt: 541112-9950, Strandgötu 3, 600 Akureyri.

Veðskuldabréfasjóður ÍV hefur birt lýsingu sem samanstendur af samantekt dagsettri 21. júní 2016, verðbréfalýsingu dagsettri 21. júní 2016 og útgefandalýsingu dagsettri 21. júní 2016. Lýsingin er birt í tengslum við umsókn um stækkun skuldabréfaflokksins VIV 14 1 sem skráður er á aðalmarkað NASDAQ Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.

Lýsingin er gefin út á íslensku. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu sjóðsins, http://www.viv.is/

Nafnverð útgáfu

Skuldabréfaflokkurinn VIV 14 1 stækkar um ISK 2.002.200.000 að nafnvirði. Viðbótin er seld til eigenda Veðskuldabréfasjóðs ÍV í samræmi við fjárfestingarloforð. Stærð flokksins verður eftir stækkun ISK 7.252.200.000. Sjóðurinn fullnýtir þar með heimild til útgáfu skuldabréfa sem skv. reglum sjóðsins og útgáfulýsingu bréfsins er ISK 7.252.200.000.

Áætluð taka skuldabréfanna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ Iceland hf.

Sótt hefur verið um töku bréfanna/stækkunarinnar til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi samhliða útgáfu þeirra. Fyrsti viðskiptadagur verður 29. júní 2016.

Skilmálar skuldabréfanna

Skuldabréfin eru verðtryggð með vísitölu neysluverðs og bera fasta 3,5% vexti. Vextir greiðast einu sinni á ári, þann 1. maí ár hvert, af verðtryggðum höfuðstól, en höfuðstóll greiðist á lokagjalddaga þann 1. maí 2044. Bréfið var fyrst gefið út 8. maí 2014. Fyrsti greiðsludagur vaxta var 1. maí 2015.

Auðkenni skuldabréfaflokksins

Auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ Iceland hf. er VIV 14 1, ISIN númer bréfanna er IS IS0000024818. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Nasdaq Verðbréfamiðstöð hf.

 


Svæði

ÍV sjóðir hf. | Hvannavellir 14 - 600 Akureyri  | Sími 460 4700 | ivsjodir@ivsjodir.is | Kt. 491001-2080 | Lagalegur fyrirvari